Gleðileg jól kæru vinir, ættingjar og aðrir blogglesendur! Vonandi rann jólasteikin ljúflega niður hjá ykkur eins og hjá okkur.
Daði Steinn er 9 mánaða í dag, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt

Hann finnur sér alltaf eitthvað til dundurs þessi elska, en einn daginn sat ég við tölvuna í mínum venjulega tölvurúnti og Daði var að leika sér undir borði og hjá glugganum, svo er hann orðinn eitthvað voðalega pirraður, svo ég fer að athuga hvað sé með hann og þá er hann kominn upp á grindina sem er undir barnavagninum og situr fastur þar:





Stundum var þetta fyndið en stundum grét maður bara yfir þessu, vissi ekki alveg hvernig hann átti að tækla þetta

Aðfangadagur gekk vel fyrir sig á þessu heimili. Ég dró alla hersinguna út í göngutúr eftir hádegi til að skila af okkur síðustu pökkunum, fórum í Engjaselið og Æsufellið. Þegar heim var komið var hafist handa við að undirbúa matinn, en strákarnir horfðu á dvd og voru bara þokkalega rólegir. Þegar allt var svo að verða klárt var spennustigið orðið nokkuð hátt hjá sumum, en allt gekk þó vel fyrir sig og var borðað í rólegheitum og gengið frá áður en sest var hjá pökkunum.
Allt var þetta gert eftir kúnstarinnar reglu og skiptust Ísak Máni og Logi Snær á að ná í pakka og svo var beðið á meðan hann var opnaður. Hérna er Ísak Máni að opna einn af pökkunum sínum, en það var ýmislegt gert til að villa um fyrir mönnum:

Stundum varð þó smá ágreiningur um hvernig ætti að gera hlutina og þá fannst þeim elsta hann þurfa að kenna þeim yngri:

Allt gekk þetta þó vel að lokum og allir mjög glaðir með sitt. Ein góð bræðramynd náðist áður en pakkarnir voru teknir upp:

Hérna koma svo tvær myndir af 9 mánaða gaurnum mínum, sem er ósköp góður og duglegur að dunda sér sjálfur:


Talandi um hvað tíminn líður hratt, þá sefur elsti drengurinn ennþá þegar þetta er skrifað klukkan 10:37, en þeir feðgar fóru víst frekar seint að sofa í gær, eða um hálf eitt þegar þeir höfðu horft á svona eins og einn NBA leik í sjónvarpinu.

Vini hans sem hringdi hérna á slaginu 10 fannst þetta frekar skrítið.
Orðinn langur myndapistill í þetta sinn, en vonandi hafið þið gaman af.
Við þökkum kærlega fyrir gjafirnar sem við fengum og vonum að þeir sem fengu gjafir frá okkur geti nýtt sér þær.
jólakveðja úr Eyjabakkanum.