Já, hérna eru einhverjir búnir að vera með hor, hósta og augnsýkingu og sumir eru það ennþá.
Ísak Máni tók þá ákvörðun að vera heima í dag, eins og í gær og ná þessu almennilega úr sér, ætlar sér ekki að verða lasinn aftur.
Daði Steinn er ósköp tuskulegur ennþá, en held að þetta sé að skríða saman hjá honum, er með ljótan hósta og augnsýkingu.
Logi Snær er hins vegar nokkuð góður og stundar sinn leikskóla að fullu, enda bara tvær fjarstýringar á Play station tölvunni og þá geta bara tveir verið heima í einu


Það er nú ekki leiðinlegt að fá að vera með stóra brósa í tölvunni. En takið eftir þessum forláta hummel buxum sem barnið er í - hann verður nú að eiga ÍR buxur líka(þó þetta séu nú bara ermar af gamalli ÍR peysu)

Daði Steinn er líka voða duglegur að taka til í eldhúsinu eins og sjá má á næstu mynd.

En það er nú líka gott að hafa eina svona skúffu sem það má róta í í eldhúsinu.
Jæja ætli sé ekki best að halda áfram að leita að dagmömmu fyrir drenginn - búin að finna tvær hér í bökkunum sem eru með laust pláss, en af einhverjum ástæðum vilja þær ekki fá Daða Stein í tvo mánuði - spurningin er núna sú hvort maður eigi að halda áfram að vera heiðarlegur og segja að mann vanti bara pláss í tvo mánuði, eða sækja bara um pláss og segja því svo upp eftir að hann er búinn að vera mánuð, ef það er það sem þarf til að fá plássið